miðvikudagur, janúar 24, 2007

Í miðbæ Aarhus-borgar stendur stórt listasafn sem heitir AROS. Þar inni á einni af efstu hæðunum stendur vægast sagt umdeilanlegt "listaverk": fullvaxta hestur sem búið er choppa niður í einhverja 113 búta - eða svo - og skipta niður á jafnmargar krukkur!!!!!

-

Í gær tókum við Martin þá ákvörðun að reyna að vera óvenju healthy og í beinu framhaldi af því sendi ég drenginn út í búð að kaupa tofu.
Hálftíma seinna stóð ég inni í eldhúsi og tæmdi innkaupapokana,... og þegar ég saklaus meðhöndlaði matarkrukkuna í allra fyrsta sinn, varð mér óneitanlega hugsað til ofannefnds listaverks!!!


Það er óhætt að segja, að ég hef aldrei verið jafn sátt við björgunarhringinn minn, eins og akkúrat á þeirri stundu!!!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?