fimmtudagur, janúar 18, 2007

Kræst!

Er búin að vera í einhver 5 ár að reyna að komast inn á þetta blessaða Blogger - eftir að Google keypti kvikindið er það bara lífsins ómögulegt og hrottaralega pirrandi!
En svona er það, ég er komin inná aftur og allir eru glaðir!

Annars er mér það mikill heiður að tilkynna það að ekki eru nema aðeins 11 dagar í að við fáum afhentan lykilinn að nýja húsinu okkar, og af því tilefni erum við hægt og hljótt farin að tína ofan í flutningakassa. Alveg er æsingurinn orðinn verulegur, og er sérstaklega 2 sem að vekur tilhlökkun:
* Ég get ekki beðið eftir að fá mína eigin þvottavél og þurrkara; þurfa ekki að panta tíma og vesenast við drífa mig því það er einhver annar að bíða eftir vélunum. Ég bara þvæ og þurrka þegar ég vil - and I'm loving it!
* Í öðru lagi, þá verður það ólýsanlegt að komast á jarðhæð og geta skutlað dömunni út í barnavagninum hvenær sem maður vill, og að sama skapi látið hana sofa úti án neins vesens!

Og þar hafiði það!

En mig langaði nú bara aðallega að benda þeim örfáum, sem enn eru að lesa, á það að það eru komnar nýjar myndir inn á barnalandssíðuna. Vihúú.. happy happy joy joy!

Og í þeim töluðu orðum mun ég rjúka inn á klósett og bursta í mér tennurnar
Adios




This page is powered by Blogger. Isn't yours?