þriðjudagur, október 24, 2006

Þá eru liðnir heilir 10 dagar síðan ég bloggaði seinast, og ástæðan er einföld: hér hjá mér hafa verið 2 yndislegir gestir, og við höfum átt yndislegar stundir.

Introducing: Guðrún & Guðrún!

Dömurnar komu s.s báðar á fimmtudeginum og var ýmislegt brallað,- var það að stærstum hluta eitthvað sem hafði í för með sér GPS tækið góða (Jane Edmonds), vinstribeygjur, innakstur yfir á bannaða staði, ökuferðir til Köben, ökuferðir frá Köben, bakaríisöfund, hláturskast, Happy Family myndatöku, nauðgunarljós, morðhús, "Be aware" - aðvörun, Big Red, Gunnugrysju, 5 ára ís og sósuklístur, Ray Machintosh, Guðrúnu í runna, epli í hári, kolaÓpal, óveður, "Má ég sjá!? Má ég sjá!? Má ég sjá!?"- æsing í Guðrúnu, og svo síðast en ekki síst H&M (og samsvarandi erfiðar ákvarðanir, 15 kg af fötum á handlegg, endalausar mátanir, stöðugan pirring á of góðu úrvali og peningaeyðslu)!!!

Takk fyrir mig, elsku stelpur! Þessi heimsókn var vægast sagt snilld!!!

Nú eru ekki nema 28 dagar í að næstu gestir láta sjá sig; mínir yndislegu foreldrar,-og ég get hreinlega ekki beðið eftir að taka svipaða syrpu með þeim!

Það verður þó ekki logið um það að ég er gjörsamlega úrvinda af þreytu og get ekki beðið eftir að dóttir mín taki til þess ráðs að fá sér blund, því að ég mun sko stelast til þess að fá mér einn álíka með henni.
En þangað til, þá verð ég víst að nýta tímann og byrja að taka til í íbúðinni. Það er sko alveg ótrúlegt hvað 2 svona penar stelpur geta draslað mikið til ;)

Neiiii, ég segi svona...




This page is powered by Blogger. Isn't yours?