þriðjudagur, október 24, 2006

Eftir endalausar áskoranir, umbeiðnir, fyrirspurnir og hvatningar, þá hef ég - gegn eigin vilja - ákveðið að stofna barnalandssíðu.

Lykilorðið er EKKI það sama og var á hinar myndasíðurnar, en vísbending er gefin neðst á forsíðunni. Þið sem að hafið ekki grænan og eruð engu nær verðið hreinlega að senda mér tölvupóst aftur :S

Nota bene: Síðan er enn í vinnslu svo að það er samasem ekkert komið á hana ennþá. En vinsamlegast .. show some understanding... þetta kemur allt áður en ég gifti mig!

Verð að stökkva upp í rúm, er búin að vera ALLTOF lengi að leika mér með þessa forsíðumynd.
Megiði öll lifa vel og lengi
Amen




This page is powered by Blogger. Isn't yours?