fimmtudagur, september 02, 2004

Maður getur víst ekki alltaf skemmt sér.

Skóladagurinn í dag var ekkert sérstakur; við sátum allan daginn fyrir framan tölvu og fórum yfir nokkur atriði,... flest allt tengt skólanetinu og hvernig það er notað,.. en það var líka eitthvað um grundvallaratriði sem ég kunni alveg.
En kennarinn sem kenndi okkur var svo mikil mús,... mig langaði bara knúsa hann og kremja.
Hann heitir Arne Bebe ( hasta la visa,.. bebe ) - og verður hér eftir nefndur Arne ofurmús !

En þetta nám leggst samt ennþá vel í mig,.. og ég er alveg fruntalega spennt fyrir þessu öllu saman.
En maður getur víst ekki alltaf skemmt sér.

Skemmtilegt frá því að segja líka, að námsráðgjafinn í skólanum heitir Bibi Rasmussen.
Hvað er málið með þessi nöfn hérna í Danaveldi.

Þannig að ef Bibi námsráðgjafi og Arne ofurmús giftast,.. og hún tekur upp nafnið hans,.. þá mun hún heita Bibi Bebe !!!!!
Magnaður andskoti !!!

---

Nema hvað,.. einn strákurinn í bekknum okkar stakk upp á því í dag að við myndum halda partý þessa helgi, svona til að kynnast aðeins betur í upphafi annarinnar. En þá vantaði bara stað til undir gleðskapinn.
Þar sem að Martin er að fara í partý í skólanum sínum á morgun, þá fannst mér það alveg þess virði að prófa að spurja hann hvort að það væri möguleiki á að halda það hér. Hann var ekkert yfir sig spenntur fyrir því,... en samt !

Þannig að ég ætla að bera þetta upp við krakkana á morgun, athuga hvernig stemningin er og hversu margir hefðu áhuga á að koma.
Vuhúúú, party on... dude.

Allavegana... Martin er að fara að sofa, og ég er að fara að horfa á einhvern make-over þátt
Mmmmm .. fitusog og allur fjandi,...

hasta la vista,... be be..






This page is powered by Blogger. Isn't yours?