fimmtudagur, september 09, 2004

Jæks !!

Við fórum á bíó í gær, á SHREK II, -... hversu ÓHEYRILEGA skemmtileg er þessi mynd !
Ég hef sjaldan, eða aldrei, helgið jafn mikið í bíói.
Við vorum komin heim um klukkan rétt rúmlega 11, og ég sem hafði verið að berjast við að halda mér vakandi um daginn, var svo upp-pumbuð eftir að hafa hlegið svona mikið, að mín bara settist niður og fór að læra,- ekki neitt sem ég þurfti að læra,.. heldur bara af því að mig langaði það svo mikið, því ég var í svo hryllilega góðu skapi.

Fyrir þá sem ekki hafa séð þessa mynd; SJÁIÐ HANA !!!

---

Annars er allt bara á góðu róli. Hitinn er alveg að gera útaf við mann,.. þetta er alveg merkilegt og ekki oft sem ég kvarta undan hita, en þegar ég þarf að sitja inni í kæfandi heitri skólastofu,.. og ég tala nú ekki um það þegar við erum inni í tölvustofum með 30 tölvur á fullu,.. þá er svo hrottaralega heitt að það er eiginlega ekki mönnum bjóðandi !

Martin lærir eins og vitlaus maður,... meðan ég er bara að " dunda mér " - þ.e ekki eins svakalegur lestur hjá mér, eins og er hjá honum,.. en ég er nú samt búin að vera rosalega dugleg, og lesa meira en ég þarf að gera, glósa og prófa mig áfram ! Dúleg þtelpa !

Síðan er bara að koma helgi,... merkilegt nok, þar sem að mér finnst sem það hafi verið sunnudagur í gær. En svona gerist víst þegar maður er á fullu, tíminn bara flýgur.

Æjjj, voðalega hef ég eitthvað lítið að segja í dag
að óspurðum fréttum,.. held ég ég fari að skella mér í sturtu
ég LOFA að koma með eitthvað krassandi á morgun, a´ight ?

see you when you get there,....




This page is powered by Blogger. Isn't yours?