þriðjudagur, september 14, 2004

Hólí makkaróli !

Ég er búin að vera með mynd af súkkulaðiköku í hausnum á mér í 24 tíma. Sá einhvern þátt í sjónvarpinu í gær, þar sem að einhver var að gæða sér á einni slíkri mega-köku.
Nema hvað að í dag sá ég annan þátt í sjónvarpinu, þar sem að svipuð kaka var í aðalhlutverki ( allavegana eins og ég horfði á þáttinn, sá ekkert annað en þessa blessuðu kökusneið ), - þannig að þá var ekkert annað í myndinni en að skella sér bara upp í búð og kaupa sér tilbúið kökudeig, bretta upp ermarnar og henda inn í ofninn.
Og vegna þess að Martin var á æfingu klukkan 19.30, og ég nennti ekki að elda mat fyrir mig eina, þá át ég bara þessa dýrindisköku í kvöldmat.

Merkilegt hvernig maður getur fengið svona ákveðinn mat á heilann, og getur ekki hætt að hugsa um hann, fyrr en maður er búinn að fá hann !

Annars er ég bara búin að sitja fyrir framan sjónvarpið í allt kvöld. Það er úr nógu að velja, en ég held ég sé samt sérstaklega mikið komin á fullt inn í danska Idolið.
Hvað gerði maður án sjónvarps, svona í alvöru talað !?!

---

Það er frí í skólanum á morgun; einhver svokallaður STUDY DAY, sem ég held að eigi að virka svona einhvern veginn eins og upplestrarfrí.
Merkilegt nok, þá er líka frí hjá Martini á morgun, en ekki samskonar frí. Það bara eitthvað tengt því að einhverjir tímar duttu niður hjá honum.
Þannig að planið hjá okkur er eftirfarandi; sofa út, taka til og læra.
Jaaaaaaaabbbvel, ef vel liggur á mér,.. þá sef ÉG út, og MARTIN tekur til og lærir !!
Jibbííí, gott plan ! :)

---

Sumt fólk er algjörar frekjur. Algjörar ! Eitthvað sem að ég er að kynnast núna í tíðum strætóferðum mínum.
Og sumt fólk er ótrúlega furðulegt,- annað sem ég er að kynnast hérna í strætónum. Maður mætir allskonar kvikindum hérna á daginn, allt frá ofurtúberuðum pönkara í gaddaleðurjakka, einhverfum smið, "it" sem lítur út eins og strákur en talar eins og stelpa - ( veit ekki enn hvort kynið er þar á ferð ! ), stelpa í býflugupilsi og ali-babar innvafnir í túrban og teppi !!!

En hver er ég að dæma; á grænan geimverugalla, appelsínugulan hænujakka, er með dauða kú á gólfinu, rækta sveppi á stofuveggnum og borða súkkulaðiköku í kvöldmat !

Anywayzzzz,
ég er farin að taka úr þvottavélinni,- ef ekki ég, hver þá !?
peace out, my homies,.....




This page is powered by Blogger. Isn't yours?