mánudagur, september 27, 2004

Böhöööö!

Ég er orðin veik ! :(
Ég vaknaði í morgun og ég FANN að það var eitthvað á leiðinnni.

Síðan, skemmtilegt nok,... þegar ég loksins kom í skólann, þá kom í ljós að barn kennarans var veikt og þá var ekkert eftir nema að taka strætóinn aftur heim ! Skemmtilegt !!!

Nema hvað, þegar ég kom heim þá leið mér svo illa að ég henti mér beint upp í rúm og lagði mig og er búin að vera sofandi/vakandi on and off í allan dag :(

Ég veit ekki hvort ég ætla í skólann á morgun, það verður bara að koma í ljós í fyrramálið.

Ef ekki, þá verður þetta ansi merkileg skólavika, þar sem að það er ekki skóli á miðviku-, fimmtu-, og föstudag vegna þessarar ferðar !
Þannig að ... ég býst við að mér eigi eftir að leiðast mikið, en það er víst bara mitt val; ég ákvað að fara ekki í þessa ferð og ég verð bara að bíta í það súra epli.

---

Þegar ég kom heim úr skólanum í dag voru 25 auglýsingabæklingar í póstkassanum,.. auglýsingaBÆKLINGAR,... 25 stykki !!!
Og svo kom Martin heim úr skólanum sínum með fleiri bæklinga í viðbót !

Hvað er málið !?!?

Og við erum ekki að tala um einhver blöð,.. þetta eru flest allt saman bæklingar upp á svona 10-30 blaðsíður !
Að sjálfsögðu fer þetta allt beint í ruslið,.. ég les þetta eiginlega aldrei !

---

Í gærkvöldi tók ég sjálfa mig í andlitshreinsun, hreinsaði mig voðalega vel og skrúbbaði og skrúbbaði með þvottapoka þar til að ég var orðin aum.
Um það leyti sem ég fór að sofa, þá var mér orðið frekar illt, og leið svona hálfpartinn eins og ég hafi sólbrunnið allsvakalega.
Þegar ég vaknaði í morgun og leit í spegilinn, þá líktist ég frekar smákrakka sem að hafði dottið á hjólinu sínu og skrámað sig allan í framan, heldur en einhverjum sem hafði farið í andlitshreinsun.
Ef einhver spyr, þá ætla ég líka frekar að segja að ég hafi dottið af hjóli, frekar en að ég hafi skrúbbað af mér húðina með þvottapoka ! ! !

Jæja.. einhver fjölskylda í krísu hjá Dr. Phil
pfffff... þetta er nú meira ruglið, hver vill fara í sjónvarpið og auglýsa öll sín vandamál ?
Þessir blessuðu Kanar eru nú nottla alveg sér á báti !

En samt,...
ætli ég sé ekki álíka hallærisleg að horfa á þetta ! ! !

adios....





This page is powered by Blogger. Isn't yours?