föstudagur, apríl 30, 2004

Soldið hræðilegt gerðist í gær ............ ; Martin pantaði miðana út -> þá er það alveg ákveðið; við fljúgum klukkan 7.30 sunnudagsmorguninn 30. maí. Og nú verður ekki aftur horfið; flugmiðarnir komnir og svo um daginn fengum við sent afrit af kaupsamningnum af íbúðinni !!! Díses kræst, sko !

En svo er soldið annað sem gerðist í gær líka. Ég fékk sent heim bréf frá einum af skólunum 3 sem ég sótti um, s.s í Køben ( sem var 3. val ) og ég komst inn !!!!! Vuuuuuhúúúú ! Ég verð að vísu að afþakka, þar sem að íbúðin okkar er í Århus og það er 3 klst. ferðalag á milli. En Martin segir að fyrst að ég hafi uppfyllt inntökuskilyrðin í Køben, þá eru allar líkur á því að ég komist líka inn í Århus. Nottla ekki aaaalveg öruggt, og ég verð víst að vera soldið á jörðinni og gera mér grein fyrir því að ég gæti fengið NEI,... en samt ! Þetta eru ágætis fréttir. Núna er bara að krossleggja fingurna og vona það að þau vilji mig þarna í Árhúsum ! Ég er búin að senda skólastjóranum nokkrar nektarmyndir af mér, svona til að ýta aðeins undir möguleikana, og svo ætlar mamma að baka skonsur sem ég ætla að senda strax eftir helgi. Þannig aðððððð...... vonandi vonandi vonandi !!!!

Ooohhh, mig langar svo að fara að skemmta mér í kvöld. En ég býst ekki við því að það séu margir í bænum,.. allir að læra undir próf og svona. Þannig að ég býst við að ég hangi bara heima og horfi á FRIENDS og IDOL.

EF EINHVER HEFUR MINNSTU HUGMYND UM ÞAÐ HVERNIG ÉG GET LAGAÐ ÞETTA SPACE-DÆMI, ÞÁ VINSAMLEGAST LÁTIÐ MIG VITA !!!

En ég er allavegana farin að gera eitthvað annað, Martin er farinn að gera svo mikið grín að mér því að ég er alltaf "inni á bloggsíðunni minni !!! "

Adios amigos.




This page is powered by Blogger. Isn't yours?