fimmtudagur, apríl 22, 2004

Jæja ! Nú fer sko heldur betur að styttast í þetta allt saman. Ég á ekki eftir að vinna nema í 20 daga,... sem eru alveg ÓÓÓÓÓTRÚLEG tíðindi. Það sem er jafnvel ennþá skemmtilegra er það að daginn eftir að ég hætti að vinna, þá er Eurovision-keppnin góða !
En eftir það er bara pakka pakka pakka !

Svo vantar mig eiginlega hjálp í að gera þessa síðu aðeins meira user-friendly. Mig vantar svona kommentakerfi eins og gunna er með og linka inn á aðrar síður og svoleiðis. Mér skilst víst að ég eigi að tala við Anton forritunarkennara úr Verzlunarskólanum. Það gerði Gunna allavegana. En hún var líka í uppáhaldi hjá honum ( eins og kannski bara flestum öllum kennurum ) þannig að ég býst við að ég verði að bjóða Antoni eitthvað í staðinn fyrir að hjálpa mér ! Kannski ég gefi honum bara númerið hjá Gunnu og lofi honum deit með henni !!! God knows að Gunna hefur örugglega gert eitthvað álíka til að stríða mér !!!! :)

En allavegana, meira verður það ekki í bili
bæjó




This page is powered by Blogger. Isn't yours?