mánudagur, apríl 26, 2004

DAMN !!!! Ég er offffffffffurgóð í að forrita. Ég náði að færa kommentadótið niður... eins og ég hafi ekki gert neitt annað allt mitt líf. Þetta er bara allt að koma hjá mér. Það er bara tvennt þessa stundina sem ég get ekki lagað. Mig vantar að setja mynd upp í hornið og mig langar til að geta fengið bil þegar ég ýti á enter þegar ég er að skrifa,... eins og núna ! En það er ekki alveg að gera sig !!!

Annars er það að frétta af mér að ég er bara ennþá veikari í dag en ég var í gær. Komin með stöðuga eyrnabólgu og meira meira hor meira hor meira nefrennsli ( svona eins og " meira meira dóp meira dóp meira fjörefni " - lagið með Buttercup eða einhverjum !!! ). Fyrir utan það að hægra augað á mér getur ekki hætt að gráta. Það er alveg óþolandi. Þetta er allt saman alveg óþolandi. Ég nenni ekki að vera veik, mig langar út í góða veðrið. Mig langar að fara í World Class og svitna my ass off. EN neiiii... ég get ekki gert neitt annað en að sitja heima og éta soðin egg og te.

Hvernig í bölvanum fæ ég þessi space til að koma ???
bless í bili




This page is powered by Blogger. Isn't yours?