fimmtudagur, október 12, 2006

Er búin að fleygja inn fleiri myndum, frá September og Október. Þær eru hér og það er sama lykilorð og var á skírnarmyndirnar.

Gleymdi alltaf að segja ykkur frá því sem gerðist í dönsku skírnarveislunni okkar. Hún var s.s haldin hérna seinasta laugardag, eða þ.e.a.s viku eftir skírnina á Íslandi. Martin hafði pantað köku 5 dögum áður, og svo þegar að hann mætir í bakaríið kl. 11.30 að ná í kvikindið, þá var það ekki tilbúið! In fact, það var bara engin kaka at all!!!! Þá hafði afgreiðslugellan sem tók pöntunina gleymt að setja hana inn í möppuna fyrir bakarana, og þennan daginn voru allir bakararnir farnir heim.
Veislan okkar átti að byrja kl. 13, svo að þá var illt í efni. Fólkið margbaðst afsökunar og sagðist ætla að redda þessu og skutla svo tertunni til okkar um leið og hún yrði tilbúin.

Nema hvað að rétt fyrir kl. 14, þá mæta þau í veisluna með kökuna. Og ekki bara var hún ÓGEÐSELGA flott gerð og algjerlega ókeypis, heldur fengum við líka risa RISA blómvönd og 500 króna gjafakort (s.s rúmar 5000 íslenskar krónur) í bakaríið!!!

Now, that is what I call to make up for your mistakes!!! Alveg hreint magnað!
Ég sé Bakarameistarann í anda gera slíkt hið sama.
Ætli þau hefðu ekki gefið 15% afslátt af kökunni og látið eina kleinu fylgja með!!!

Veislugestunum fannst þetta alveg magnað, og sérstaklega móðursystur Martins, sem hreinlega hætti ekki að tala um það að við ættum að skrifa í neytendadálk Extra Bladets og lýsa aðdáun okkar á þessum atburðum!!!
Þrátt fyrir ágætis hugmynd þá höfum við ekki enn látið verða af því,- en það fylgir hinsvegar ekki sögunni hvort að hún hafi tekið málin í sínar hendur og ávarpað alþjóð gegnum Morgunblaðið.


Og þar hafiði það
meiri tími gefst ekki í bili
tataa




This page is powered by Blogger. Isn't yours?