þriðjudagur, september 12, 2006

11 dagar... 

Kæru velunnarar, ... sem og aðrir menn!

Ég uppgötvaði það skyndilega í dag að ég gleymdi alltaf að tilkynna ykkur það að ég það er komin dagsetning á heimkomu okkar mæðgna og hljóðar hún uppá laugardaginn 23. Það segir mér að það séu aðeins 11 dagar í herlegheitin, og ekkert nema gott um það að segja!

Annars er bara allt fínt að frétta af okkur Larsen-um. Isabella er búin að jafna sig á kvefinu og er orðin hressari en nokkru sinni áður, gerir fátt annað að brosa og hlæja.
Hins vegar nældum við Martin okkur í sömu bölvuðu flensu og erum bæði svona að stíga upp úr kvikindinu.

Það er skemmst frá því að segja, að mitt í öllum þessum veikindum þá lentum við í svaðalegum eltingaleik við stærðarinnar könguló. Alltaf þegar við reyndum að veiða hana, þá stökk hún svo hratt til hliðar að við hreinlega mistum sjónar af henni og urðum að láta gott heita í bili. Svo fundum hana alltaf af tilviljun daginn eftir, einhversstaðar allt allt annarstaðar í húsinu!
Nú! - ég er ekki og hef aldrei verið hrædd við köngulær. Afturámóti er ég enginn brjálaður fan heldur, sérstaklega ekki þegar tekið er mið af þeirri staðreynd að fólk gleypir að meðaltali 8 köngulær í svefni, á ári!!!
Og ekki batnar það heldur þegar við maður veit að þær eru á vappi um íbúðina á sama tíma og við hin liggjum og sofum uppi í rúmi,- og sökum flensu - öndum með munninm!


Ohh well,.. allt saman endaði þetta vel, og dýrið var drepið eftirum 5 daga hide and seek!

En jæja kæru vinir
þarf að fara að svæfa eina þreytta
leirahh




This page is powered by Blogger. Isn't yours?