þriðjudagur, apríl 11, 2006

OK!

Ég verð að fá að lýsa skoðun minni á einu,- ég veit að hún á örugglega eftir að fara fyrir brjóstið á einhverjum, - en það verður bara að hafa það:

Ég held að Madonna hljóti að vera einn allra ALLRA ofmetnasti "tónlistarmaður" allra tíma.
Ég hef nokkrum sinnum séð, í sjónvarpinu, svona LIVE upptökur af tónleikum hjá henni (eða einhverskonar performance) - og manneskjan heldur varla lagi. Ég hef 2 sinnum (svo ég man) þurft að skipta um stöð, því ég hélt það ekki út að hlusta á hana!

Þó svo að ég geti viðurkennt það að nýjustu lögin hennar séu nokkuð góð, þá get ég því miður ekki sagt það sama um öll hennar eldri. Ég hreinlega skil ekki hvernig stúlkukindin náði þessari svakalegu frægð og frama, - því öll gömlu lögin hennar eru helber vibbi!

Já,.. langaði bara aðeins að hella mér yfir ykkur. Málið er nefnilega það að ég get varla horft á hana án þess að fá grænar á rassinn og pirring niður eftir baki,- og þessa dagana finnst mér hún vera allstaðar!!!

En jæja, má ekki vera að þessari vitleysu,
er að fá fasteignasala í heimsókn til að meta íbúðina okkar,
cheers




This page is powered by Blogger. Isn't yours?