þriðjudagur, apríl 25, 2006

Það er eitthvað við bókasöfn sem hræðir mig!

Og í beinu framhaldi af því þá þori ég aldrei að fara þangað ein. Þarf alltaf að draga einhvern með mér,... og ef enginn er til taks, þá hreinlega sleppi ég því að fara.

Ég veit ekki hvað það er sem er svona fráhrindandi,- hvað það er sem er svona yfirþyrmandi hræðilegt; hvort það er öll þessi viska lokuð í litlu herbergi, þrúgandi þögnin, tilfinningin um að það sé einhver að fylgjast með mér, benda á mig og hlæja að bókavali,.... eða nagandi samviskan sem stríðir mér því að ég hef einhvern tímann gleymt að skila,....

Hvað sem það er þá gerir það allavegana að verkum að þó svo að mig BRÁÐVANTI nokkrar bækkur á þessum tímapunkti í verkefninu mínu, þá hef ég algjörlega litið framhjá þeirri staðreynd vegna þess að Martin er staddur í Þýskalandi, - og ég vil ekki trítla ein upp í opið geð ljónsins!!!

---

En já! Martin er s.s í Þjóðverjalandinu þessa stundina að versla inn.
Það er nefnilega þannig að eftir 1 og hálfa viku þá verður haldin svona "árshátíð" handboltaflokksins hans, - og af því tilefni skaust hann yfir í "land ódýrra veitinga" ásamt öðrum kammerat til að kaupa hrúgu af bjór.
Að sjálfsögðu verður tækifærið gripið og 90 dósir af Diet Pepsi munu innan 2 klst fylla ísskápinn minn!
Óóó diet pepsi - long time no see!!!

Að öðru leiti er það helst í fréttum að við erum sennilega bæði að missa vitið, svona hvað úr hverju.
Í beinu framahaldi af seinust færslu, þá lágum hérna uppi í rúmi í gærkvöldi og kepptumst við að syngja einhver önnur lög fyrir hitt að fá á heilann. Það virkaði líka svona glimmrandi vel, að í morgun þegar ég fór á fætur og áður en ég var meira að segja sest niður til morgunpisss, þá var ég farin að raula um þessi blessuðu hjól í Beijing!!!

Þetta er ALGJÖRLEGA ÓÞOLANDI! Ég skil bara ekki hvernig þetta lag er orðið svona brennimerkti í hausinn á okkur.
Ég er allavegana að íhuga það að skrifa meil til Katie Melua, þar sem ég hóta henni saksóknar og heimta himinháar upphæðir fyrir traðka svona ofan á betri vitund minni.

"I have a reputation, you know, and a final project I need to finish....... bitch !!!"




This page is powered by Blogger. Isn't yours?