föstudagur, apríl 21, 2006

Bráðþroska hænuungi !?!? 

VÁ VÁ VÁÁÁÁÁÁ !!!!

OK, mig langar bara að þakka ykkur öllum alveg ROOOOSALEGA ÓÓÓÓÓTRÚLEGA fyrir hjálpina með könnunina. Ég hef núna fengið 4 SINNUM fleiri svör en ég upphaflega var að VONAST til að ná.
Jahérna hér,... ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja til að lýsa þakklæti mínu (*fiðluspil*) en þið megið sko vita það að útkoman hefur algjerlega tekið mig með stormi og fleygt mér upp á bleikt ský! Þar sit ég núna og syng, og plana það hvernig í ósköpunum ég á að fara að því að vinna úr öllum þessum gögnum :)
Spurning um hafa samband við kennarann og biðja um frest !?!?!?

Njahhh, ég segi svona!
En s.s " from the bottom of my heart: takk takk takk til allra sem að lögðu það á sig að svara,- og að auglýsa þetta enn frekar fyrir mig!"
*knúúúúúúúús*

---

Annars er nú lítið annað að frétta af mér, fyrir utan þetta verkefni. Ég bara hangi hérna heima allan daginn og vinn í því. Er farin að finna fyrir svo mikilli þreytu að ég hef bara ALDREI á ævi minni upplifað annað eins. Ég er LITERALLY að beeeeerjast við að stíga fram úr rúminu fyrir klukkan 12 á hádegi, og þarf oftar en ekki að halla aftur augunum seinna um daginn til að endurhlaða batteríin enn frekar.
En svona er það víst, það fylgir og ég get ekki verið að kvarta!
But, my darlings,... ég ætlaði bara að koma þessum þakkarorðum til skila
Langar, svona áður en ég kveð, að sýna ykkur myndina af páskaegginu mínu.
Það er nefnilega þannig að ég hef aldrei verið hrifin af slíkum óbjóði; finnst hreint rjómasúkkulaði hinn mesti vibbi og nammið sem er innaní er heldur ekkert sem freistar mínar.
En í ár, - bara svona til að vera píííínulítið með á nótunum, - þá skellti ég mér upp í búð og keypti það sem kemst því næst: venjuleg hænuegg!
Það er skemmst frá því að segja að ég missti VÆGAST SAGT listina þegar ég - einn góðan veðurdag, hugsaði mér gott til glóðarinnar, setti vatn í pott til að sjóða dýrið og fleygja ofan á hvítt samlokubrauð,- opnaði kassann og tók upp þetta kvikindi,


Hef síðan þá verið að velta því fyrir mér hvort það sé eitthvað til sem heitir BRÁÐÞROSKA HÆNUUNGI !?!?!?
En jæja, er farin að horfa á American Idol,
bið að heilsa í bili
cheeeeers
p.s komnar nýjar bumbumyndir!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?