fimmtudagur, mars 23, 2006

Mig langar að þakka öllum góð- sem og annars slags hjörtuðum fyrir þær kveðjur, sms, hringingar og samtöl á msn sem ég hef fengið á þessum líka ágætis degi!

En veruleikinn er súr, og ég er nú orðin heilu ári eldri en ég var í gær,- eins og faðir minn elskulegur á svo oft til að segja á afmælisdögum ;)

Dagurinn er búinn að vera... tjahh.. bara eins og hver annar dagur. Vaknaði með Martini klukkan 7.30 og þeyttist eins og æstur krakki um alla íbúð að leysa ratleikinn sem hann hafði gert handa mér.
Fór niðrí bæ, til að nota H&M gjafakortið sem að fylgdi með, og endaði nottla á því að labba þar um í 3 tíma !!! Pfff.. hafði ætlað mér TOP klukkutíma í það verk.
Er síðan búin að vera að skrifa verkefni, hanga á netinu og spjalla á MSN samasem síðan ég kom heim.

Martin kallinn er á æfingu, kemur heim um 21.30. Þá horfum við á Paradise Hotel og svo beint að skúra. Já... það er sko enginn dagur fullkominn, nema að hann endi uppi í skúringum!!!

Annars er ég búin að fleygja inn enn fleiri bumbumyndum, s.s vika 28 og 29!
Já já... ég veit ég veit.. við erum alveg stórklikkuð!
En ég verð nú samt að tilkynna það að ég hef fengið fjöldamargar áskoranir og góða dóma fyrir að vera svona dugleg að setja inn nýjar og nýjar myndir, þannig að þangað til að ég heyri annað..þá held ég áfram!

Við fórum út að borða í gærkvöldi (af því að Martin er svo busy í kvöld), afmæliskvöldverðinn minn, á grískan veitingastað. Hef bara ALDREI, síðan ég flutti til Aarhus, fengið svona hrottaralega góðan mat.
Af því tilefni verður ekkert gott á boðstólnum í kvöld, aðeins skitnar kjúklingabringur og fetaostur.

Og þar sem að það er von á kallinum eftir um klukkutíma, þá er kannski vissara að fara að afþýða þessi kvikindi og steikja í gegn!

Bið að heilsa í bili
Turilú,
Erna.. OUT !




This page is powered by Blogger. Isn't yours?