mánudagur, mars 06, 2006

Hvar er Bubbi ???? 

Við Martin skelltum okkur seinasta föstudag upp á læknastofuna þar sem við erum að skúra og ætluðum að fá að vita kynið á krakkaskrattanum. Læknirinn byrjaði á því að segja mér að þetta væri ekki hans sérsvið og þess vegna gæti hann ekki lofað því að hann kæmi með lokaniðurstöðu. Fyrir utan það, að hann sagði að 26. vika væri soldið seint fyrir slíkar aðgerðir.

En nema hvað, hann leitaði og leitaði, bögglaðist fram og til baka með stýripinnan á sónartækinu, pírðu augun, zoomaði inn og zoomaði út, aftur og aftur ... en hvorki fann hann bibbu né bubbaling. Fjandans fjandinn!!!! :(

En hvernig sem fer og hvort sem verður, þá lofa ég að þetta:
kemur ekki fyrir barnið mitt !!!!

Over and Out




This page is powered by Blogger. Isn't yours?