þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Nú fer brátt að koma að því að ég stíg inn í 24. aldursárið.
Þegar ég lít til baka yfir farinn veg, þá verð ég nú að viðurkenna það að það er sko alveg fjandi margt sem ég er þakklát mínum foreldrum fyrir að hafa gert fyrir mig.
En eitt er það þó sem seint verður sett á þann listann og ég veit ekki hvort ég mun nokkurn tímann fyrirgefa honum karli föður mínum þá syndina = að hafa kennt mér að spila FreeCell tölvukapalinn !!! Ég er gjörsamlega föst í honum, og sífellt að keppa við sjálfa mig og tölvuna, kíki stöðugt á statistíkina og bið til Guðs að UNNIR LEIKIR séu orðnir fleiri en TAPAÐIR. Ég hangi hérna langt fram á kvöld, að beeeeerjast við að halda augunum opnum, af því að ég ætla bara ".. að spila einn enn... " og " eiiiiinnn enn !!! " - og meira að segja finn sjálfa mig stundum liggjandi uppi í rúmi, með lokuð augun að flytja hjarta tíu ofan á laufa gosa !!!

Boðskapurinn minn er aðeins einn og ekki flókinn; byrjiði EKKI að spila kvikindið,- því það er meira ávanabindandi en Diet Kók !!!!!

---

Annars var ég að setja inn nýjustu bumbumyndirnar. Linkurinn er hérna við hliðina á: LILLE LARSEN !

Enjoy, og geriði ekki grín að listaverkinu mínu (þið vitið hvað ég meina þegar þið skoðið myndirnar !)

Gleðilegan Valentínusardag
eigiði glaðan dag
Hæl,- Hitler !




This page is powered by Blogger. Isn't yours?