þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Ég hef nú framið ansi mörg heimskupör í gegnum lífstíð mína,- en get stolt sagt að enginn hefur hann verið glæpurinn (jahh,.. nema þarna einu sinni þegar að ég stal sykurmolum úr eldhúsinu á Háaleitisbraut og faldi þá undir rúminu mínu, því ég hélt að mamma myndi ekki vilja leyfa mér að borða eintóman sykur!)

Veit samt ekki hvort að ég mun geta sagt það sama eftir daginn í dag,....
eftir að hafa kíkt á þessa síðu,- og síðan áttað mig á því að ég er stödd í rúmlega 3 þúsund kílómetra fjarlægð í burtu frá næsta sölustað sem selur slíkan unað,... þá held ég að ég sé komin ansi langt fram á brúnina, og nokkuð nálægt því að drepa mann ... eða annan !!!!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?