mánudagur, desember 19, 2005

Já, lömbin litlu!

Það er búið að vera svo kreisí mikið að gera hérna, að það er bara ekki eðlilegt. Allt stressið að hellast yfir mann, enda asnaðist ég til að segja móður minni að bíða með allan jólaundirbúning þar til ég kæmi. Þess vegna er heimilishraðinn hérna í kringum 270 km/klst, baka baka, þrífa þrífa, versla versla!

Við afrekuðum að gera himnesku Sörurnar í gær. Held það hafi tekið um 4-5 tíma. Við mæðgur fórum svo í Smáralindina og náðum að stroka nokkrar gjafir út af listanum okkar,- þó ekki allar!

Í dag,- MEGI GUÐ VERA MEÐ MÉR,- er ég að fara til tannsa. Ég er búin að kvíða fyrir þessum degi í rúmt ár! Ojj ojjj ojj! En ég er búin að hugsa þetta út, og ég hugsa að hann eigi jafnvel eftir að drífa sig eins mikið og hann getur: ég fékk mér nefnilega kókómjólk og túnfisksamloku í morgunmat! Og hversu ÓGEÐSLEGT er að hanga fyrir ofan gapandi kjaft á einhverjum sem er nýbúinn að éta þá blöndu !?

Í dag þarf ég líka að baka fleiri kökur og byrja á að skreyta heimilið. Einhversstaðar eftir tannlækninn fer ég svo vonandi vonandi með vinkonum mínum, þeim Guðrúnu og Sigrúnu, í Kringluna. Því að í öllu þessu stressi, þá hef ég tæpst náð að hitta þær, sem er synd og skömm :(

En jæja.. ég þarf að fara að drífa mig í sturtu
wish me luuuuck hjá tannsa beibí
bið að heilsa í bili
Ernos fernos!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?