föstudagur, desember 16, 2005

"HOOOMEE"... at last ! 

Jább.. komin til Ísalandsins, eftir alveg fruntalega ömurlegt og erfitt ferðalag í gær. Tók hátt í 12 tíma frá því að ég yfirgaf Gebauersgötuna og þar til ég steig fæti inn í Safamýrina. En ég lifi !

Byrjaði kvöldið á að fá mér íslenska kókómjólk og brauð með íslensku rækjusalati. MMMMM!
Fékk mér svo íslenskt kókópöffs og íslenskt skyr í morgunmat,- og eftir miklar útréttingar, akstur og bruðl, þá hentist ég í íslenska bakarameistarann og gæddi mér á annari íslenskri kókómjólk, skinkuhorni og íslenskri hrísköku!

Allt íslenskt og hvert öðru betra!

Er að fara með Guðrúnunni minni að horfa á æfingu hjá handboltastelpunum, það verður alveg magnað,... sérstaklega með tilliti til þess að ég hef ekki hreyft á mér rassgatið síðan í október, og þá er sko ekkert betra fyrir sálina og samviskuna en að horfa á spriklandi fólk sem að er í toppformi !!!

---

Við systkinin vorum að tala um ensku. Þá sagði Trausti bróðir okkur frá ansi skemmtilegum fyrirlestri sem hann hélt í enskutímanum sínum. Drengurinn var alveg óundirbúinn og með ekkert planað,- og hann labbar upp á töflu og heldur fyrirlestur um banana:
" Well,.. there is a BA... then there comes a NA..... and theeen there comes another NA!"
Svo hélt hann smá sýnikennslu og teiknaði mynd!

Já, ég er að segja ykkur það; það vantar ekki grínistana í þessa fjölskyldu!



Aaaannyhooo, verð að fara að pissa áður en ég skelli mér í framheimilið
turilú, to all of you
hin eina sanna íslenska erna




This page is powered by Blogger. Isn't yours?