þriðjudagur, desember 27, 2005

Gleðileg jól, gott fólk, - gleðileg jól !

Ég vona að allir hafi haft það gott,.. ég veit að ég er búin að hafa það allt allt ALLT of gott. Hangi hérna heima, uppi í sófa eða rúmi, og geri ekki annað en að horfa á sjónvarpið og éta FRUNTALEGA óhollan mat. Sýnir sig líka á vigtinni: er búin að þyngjast um rúmt kíló síðan ég kom !!!!!
Kannski kominn tími til.. enda bara búin að léttast síðan ég varð ólétt.. og Martin ekkert rosalega sáttur með það, sakar mig um að svelta barnið okkar!!
En núna er ég s.s loksins farin að bæta utan á mig,.. og finnst það greinilega á öllum fatnaði, sem tæpast nær utan kjellinguna.

Langaði bara rétt að kasta á ykkur kveðju. Er að fara að stökkva í Kringluna að skipta nokkrum jólagjöfum, sem ég fékk tvennt af.

Bið ykkur vel að lifa og vona að þið eigið góð og gleiðileg áramót.

Happy happy new year
Aaaddddios!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?