laugardagur, desember 03, 2005

12 dagar til heimfarar..... 

Jæja, þá er maður sestur aftur við tölvuna í þeim tilgangi að "hanga".
Erum búin að vera á fullu uppi í skóla, seinustu 3 vikurnar, og þessi hérna vika var sérstaklega slæm, vegna þess að lokaverkefninu átti að skila inn á hádegi í gær. Af því tilefni, þá vorum við t.d uppi í skóla til frá 9 - 23 á miðvikudag og frá klukkan 9 til 3 á fimmtudagsnótt, og svo mætt aftur í gærmorgun til að fara svona létt yfir alles, áður en við skiluðum inn á skrifstofuna. Fjúff !

Byrjaði líka á því í gær, þegar ég kom heim, að leggja mig í 3 klst. Vaknaði um 18.30, fór með Martini upp í búð og verslaði í matinn, eldaði, horfði á sjónvarp og var svo farin að berjast við að halda augunum opnum aftur um 21.30 !!!

Á fimmtudagskveldi, þegar að við vorum vægast sagt orðin veeeeel þreytt, þá fór svefngalsinn að sýna sig í öllum hegðanamunstrum. Til dæmis má nefna eina ákveðna heimasíðu, sem ætlaði að æra okkur úr hlátri: http://www.farts.com
Já, nafnið lýsir innihaldinu betur en allt annað: þetta eru allskonar prumpuhljóð!!! :)

Enn aftur langar mig að minna ykkur á það að meðalaldurinn í okkar hóp er upp á tæp 24 ár !!! :)

---

En ég sé fram á töluvert bjartari tíma núna. Aðeins eru eftir 2 munnleg próf, og síðan tek ég næsta flug beinustu leið til Ísalands. Mikið SvaHAkalega verður það magnað.

Annars hef ég óskup lítið að segja núna.
Ætla að leggja mína leið inn í eldhús og smyrja mér bollu með hamborgarahrygg
Bið að heilsa í bili,
ciaoo




This page is powered by Blogger. Isn't yours?