sunnudagur, nóvember 27, 2005

Ohh, ég er með alveg fruntalega leiðinlegt lag á heilanum, - barnalag.
Og það versta við það er, að ég man bara eina línu í því:
"... því ræningjar oss vilja ráðast á !"

Getur einhver, í Guðana bænum, fyllt upp í eyðurnar fyrir mig?
Er þetta ekki lagið þar sem fólk myndar svona göng, með því að taka í hendurnar á einhverjum öðrum og lyfta þeim svo upp. Svo labbar maður í gegn ???

Vorum að koma heim úr skúringum, ég er að drattast niður af þreytu, enda búin að vera vakandi síðan 9 í morgun, og það var sko EKKI viljandi, þar sem ég sofnaði einhvern tímann eftir miðnætti í gær, ég bara hreinlega gat ekki sofið lengur.

Þannig að ég ætla að hætta þessu rugli og skella mér í tannburstingar
...ciaooo!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?