laugardagur, nóvember 19, 2005

Gæsapartý! 

Ég fór út að hlaupa í morgun, og já,..... það er nokkuð ljóst að Veturkonungur hefur lagt leið sína til Baunalands.
Það sást kannski einna helst á því að landið allt, gras, tré, blóm og önnur jörð var þakin héli. (S.s ekki klaka eða ís, .. en svona bara semi-ís-áferð!)
Það sást ekki síður á þeirri staðreynd, að sama hversu hratt ég hljóp,- ALLTAF virtust Geir og Finnur vera einu skrefi á undan mér!!!!!!!!!!!

Hljóp minn vanalega hring í kringum vatnið, og ég skal sko segja ykkur það að ég hef ALDREI séð jafn mikið af gæsum í einni þyrpingu og akkúrat á þessum túr! Spurning hvort þær hafi verið að halda partý?!
Á leiðinni mætti ég líka róna, veiðimanni, frosnum ketti, hundaskít sem var í laginu eins og eldflaug og kráku!
Ætli þau hafi öll verið á leið í veisluna?

---

Martin er farinn!
Hann fór í morgun til Sjálandsins fagra, í heimsókn til foreldra sinna! Ég ætlaði ekki að hætta að grenja, sem er svosum ekki frásögum færandi nema bara af því að drengurinn kemur aftur heim á mánudag!!!!!!!
Já, huxunin um 2 daga skilnað alveg að fara með mig. Er ekki frá því að hormónarnir mínir séu á hættusvæði og hafi einhver áhrif á annars sæmilega eðlilega hegðum mína!

Ég hef nóg að gera sjálf: þarf að taka allsvakalega til í húsinu, og sérstaklega í fataskápnum mínum. Það er einhvern veginn allt komið í kúk þar inni og ég þoli ekki að horfa upp á þetta ástand lengur. Síðan þarf minns að læra soldið yfir helgina og að SJÁLFSÖGÐU að liggja uppi í rúmi, slappa af, borða óhollustu og telja niður mínúturnar þar til kallinn minn kemur aftur heim í kotið !

Svei mér þá, það er sko aldeilis orðið langt síðan að ég endaði færslu á því að segjast vera á leiðinni á klósettið:
þangað verður förinni hér með heitið!

Bið ykkur vel að lifa, og ég sé ykkur öll saman eftir tæpan mánuð!
Party on, dude! VUHÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚ !!!!!
Larsen- out!




This page is powered by Blogger. Isn't yours?