þriðjudagur, september 21, 2004

Það er eitthvað bölvað bögg í gangi í einum jaxlinum mínum !

Ég held ekki að þetta sé tannpína, grunar að þetta tengist frekar því skipti sem ég var hjá tannlækninum á Íslandi og hann var eitthvað að krukkla í taugunni sem er þarna að væflast eitthvað í kring.
Þetta er nefnilega ekki stöðugur verkur, heldur meira svona óþægindi, og aðallega og eiginlega bara þegar að ég er að tyggja.
En hvað veit ég,.. þetta gæti vel verið tannpína !

---

Við mömmu og pabba og alla þá sem að þola ekki þegar ég bölva hérna á blogginu vil ég segja; LÍTIÐI UNDAN,... en þessir helvítis frammarar eru nú meiri bölvuðu hálfvitarnir !!
Það er eitthvað svaka vesen í gangi með samninginn hans Martins, uppá það að hann skrifi formlega undir hérna í Aarhus, og þessir blessuðu hanapungar þarna í Safamýrinni eru bara með einhverja fjandans stæla !!!
Þannig að það gæti jafnvel farið þannig að Martin gæti ekki formlega skipt um félag, og þar með ekki fengið að spila með liðinu.
Ég veit ekki hvort hann meinti það; en í dag þá sagði hann að hann vildi ekki vera æfa, ef hann mætti ekki spila.
Ég var eitthvað að reyna að hugga hann, auðvitað getur hann æft svona uppá hreyfinguna og félagsskapinn,.. en hann var eitthvað á báðum áttum.
Spurning hvort að þetta hafi bara verið sagt í hita augnabliksins ,...!!!

---

En jæja,.. danska IDOLIÐ er á fullu hérna í sjónvarpinu og spennan er þvílíííííkt mögnuð,

leirahhh,...







This page is powered by Blogger. Isn't yours?